UM KEPPNINA
Fyrirkomulag
Greindu betur er landskeppni í gagna- og upplýsingalæsi þar sem áhersla er lögð á hæfni til að skilja og túlka tölulegar upplýsingar.
Keppninni er ætlað að veita ungu fólki á aldrinum 14-19 ára tækifæri til að efla gagnrýna hugsun, sköpun og ábyrga notkun upplýsinga. Keppt er í tveimur aldursflokkum:
Yngri flokkur: 9.-10. bekkur í grunnskóla
Eldri flokkur: 1.-3. ár í framhaldsskóla
Keppendur vinna saman í 2–3 manna liðum við að svara 30 krossaspurningum sem meta færni í að skilja tölfræði í samræmi við getustig hvers námsstigs. Þau lið sem ná bestum árangri komast áfram í úrslitakeppni Greindu betur, þar sem þau vinna rannsóknarverkefni byggt á gögnum Hagstofunnar eða Evrópsku hagstofunnar, og kynna niðurstöður sínar í glærukynningu.
Sigurliðin í hvorum aldursflokki Greindu betur, fá tækifæri til að taka þátt í Evrópukeppninni, sem haldin er af Evrópsku hagstofunni.
Hagstofa Íslands er gestgjafi keppninnar sem er styrkt af Evrópsku hagstofunni, Eurostat.
Forkeppni
Forkeppnin inniheldur þrjú próf:
Próf í þekkingu á tölfræðilegum hugtökum.
Próf í notkun hagtalna af vef Hagstofu Íslands.
Próf úr gagnvirkum hagskýrslum Evrópsku hagstofunnar (e. Euorstat) .
Hvert próf inniheldur 10 krossaspurningar sem meðlimir liðsins svara í sameiningu. Aðeins einn svarmöguleiki er réttur af fjórum mögulegum.
Nemendur hafa þrjár vikur til að leysa öll prófin í fyrri hluta. Nemendur geta leyst prófin í skólanum eða heima svo lengi sem þeir hafa aðgang að nettengdri tölvu. Hægt er að vista svör og halda áfram seinna. Þar sem bæði er spurt um grunnþekkingu í stærðfæðilegum hugtökum og um tölulegar staðreyndir um umhverfi og samfélög má nýta prófin við kennslu í mörgum fagreinum. Til dæmis henta prófin vel sem kennsla í samfélagsgreinum og umhverfisfræði auk stærðfræði.
Spurningarnar í prófunum eru miðaðar að hæfniviðmiði hvers aldurshóps. Þannig miðast spurningar fyrir B flokk við að nemendur 9. og 10. bekks ráði við að svara þeim en spurningar fyrir A flokk við að nemendur í fyrstu tveimur bekkjum framhaldsskóla geti svarað þeim.
Úrslitakeppni
Úrslitakeppnin felst í því að liðin útbúa kynningu á rannsókn sem gerð er á grundvelli hagtalna. Eins og í forkeppni hafa nemendur þrjár vikur til þess að leysa verkefnið fyrir úrslitakeppni.
Nemendur velja sér rannsóknarefni og útfæra einfalda rannsókn og skila svo inn lýsingu á þessari rannsókn sem glærukynningu sem inniheldur eftirfarandi efnisflokka:
Markmið: kynning á viðfangsefni og af hverju það er mikilvægt.
Aðferð: lýsing á aðferð og tölfræðilegri úrvinnslu.
Niðurstöður: lýsing á niðurstöðum ásamt töflum og myndum.
Ályktanir: niðurstöður eru dregnar saman og nemendur draga ályktanir um hvað niðurstöðurnar þýða.
Heimildir: listi yfir heimildir. Vísa skal í útgefnar hagtölur í formi vefhlekkja.

